Tækifæri

Lífið býður uppá mörg og margvísleg tækifæri. Margir missa af sínum stærstu tækifærum vegna þess að þeim skortir kjarkinn til að láta á hlutina reyna. Þeir sem hins vegar þora að ganga út á vatnið munu annað hvort blotna í tærnar, eða ná að ganga á vatninu. Það sem er spennandi er að maður veit það ekki alltaf fyrirfram hvernig árangurinn verður.

Fyrir rúmmu hálfu ári stóðum við Kata mín frammi fyrir því að taka aðra holskefluna í okkar fjármálum. Við vorum þá nýrisin upp eftir okkar fyrri niðursveiflu, og sú sveifla var alfarið í okkar boði og á okkar ábyrgð. Þar tókst okkur að sigla okkar "þjóðarskútu" upp á sker án þess að neinum væri um að kenna nema okkur. Í seinna skiptið urðum við samferð nokkurm góðum einstaklingum og lögaðilum eins og Eimskip, Stoðum, Kaupþingi, Glitni, Landsbankanum og Hannesi Smárasyni, svo að aðeins nokkrir séu nefndir. Það var svo sem ekkert minna svekkjandi að tapa öllu aftur, þó að í því væri smá fróun að auðvelt var í þessari lotu að benda á aðra sem hjálpuðu til við að stranda skútunni. Þetta var sem sagt ekki alfarið á okkar ábyrgð.

Reynsla gjaldþrotsins í byrjun aldarinnar hafði þo kennt okkur það að það eina sem við töpuðum í bankahruninu 2008 voru peningar. Við áttu ennþá hvort annað, einlæga vináttu og hreina ást og .....tækifæri!

Við tókum á tiltölulega skömmum tíma ákvörðun um að nýta tækifærið sem fólst í því að við neyddumst til að flytja úr fallega sveitasetrinu okkar á Selfossi að flytja aðeins lengra en við höfðum gert í langan tíma. Stefnan var sett á Álaborg og síðan var haldið á vit nýrra ævintýra.

Sumir voru afar svartsýnir á þessa ákvörðun okkar, en aðrir stóðu með okkur og höfðu trú á því að þetta væri góð og heilbrigð ákvörðun. Það sem mestu máli skipti var að við fjölskyldan vorum sammála um að í breytingunum lægu tækifæri og við ákváðum að "taka sénsinn". Í slíkum tilfellum gildir oft að sá sem alltaf horfir í skýin sáir aldrei, og sá sem sáir aldrei, uppsker aldrei.

Við sáðum ..... og nú uppskerum við og erum harla ánægð með að hafa þorað að nýta þau tækifæri sem við sáum í kringumstæðunum.

Bara smá pæling hjá mér! Njótið lífsins - og tækifæranna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Halló Teddi og familí

Gott hjá ykkur! Guð veri með ykkur og blessi ríkulega.

Kveðja vinurin Nanna Þ

Nanna Þ (IP-tala skráð) 27.2.2010 kl. 16:45

2 Smámynd: Theodor Birgisson

Takk kæra frænka og sömuleiðis!

k.kv.

Teddi vinur þinn

Theodor Birgisson, 28.2.2010 kl. 17:24

3 identicon

Hæ elsku besti Teddi

Frábær skrif hjá þér eins og alltaf og aldeilis mikið til í þessu hjá þér, aðalatriðið er að eiga hvort annað og fjölskylduna saman. Peningar eru ekkert e maður missir það, það er nú líka bara þannig  í lífinu eins og þú sagðir að ekki hefðu allir verið sáttir við þessa ákvörðun  ykkar. Að það verða aldrei allir sáttir við allt sem maður ákveður, hvernig sem maður reynir. Þannig að það er svo frábært þegar fólk er samkvæmt sjálfum sér eins og þið og farið YKKAR leið ekki það sem aðrir vilja.

 Þið eruð einstök og yndisleg, mér þykir alltaf svo mikið vænt um ykkur þó ég sjái ykkur alltof sjaldan  orðið

 kveðja Sonja Granz

Sonja G. Ólafsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2010 kl. 11:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband