Sumarfrí
19.6.2009 | 07:49
Þessar línur eru skrifaðar í Brekkuskógi þar sem fjölskyldan höfum dvalið í vikutíma. Í dag er hins vegar kominn tími til heimferðar og það er eins með þessa ferð og allar aðrar, toppurinn er að koma heim!
Tíminn hér hefur verið yndislegur - gott veður og góður félagsskapur. Við höfum líka fengið gesti og það eru forréttindi að eiga vini sem vilja leggja á sig ferðalag til að hitta mann.
Ég á framundan frí í nokkra daga og það er líka yndislegt að þurfa ekki að fara að vinna strax á eftir svona letidögum eins og hafa verið hér í Brekkuskógi. Ég hef ekki átt svona gott frí í fimm ár, eða síðan ég ég starfaði síðast fyrir Samhjálp árið 2004 en þá fékk ég 4 vikna frí í einni lotu. Ég á ekki fjórar vikur þetta árið en Heiðar, yfirmaður minn hjá Samhjálp, er mér afar góður og sýnir í verki að hann vill mér allt það besta. Þannig höfum við hliðrað til fyrir hvorn annan og ég fæ 3 vikur í sumarfrí og á því tvær vikur eftir.
Njótið lífsins vinir mínir - það er ég alla vega að gera á hverjum degi.
Athugasemdir
Sæll og blessaður
Þú hlýtur að láta sjá þig á Sumarmóti Hvítasunnumanna á Akureyri fyrst þú ert í sumarfríi.
Sjáumst kannski.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 20.6.2009 kl. 01:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.