Færsluflokkur: Bloggar
Nýtt blogg
23.12.2008 | 09:48
Það er ekki hægt að segja annað en kreppan hefur kallað fram ýmsar breytingar í lífi landsmanna. Ekki einasta erum við hjónin búin að losa okkur við báða lúxusvagnanna sem við keyrðum (og bílalánin af þeim) heldur hef ég ákveðið að hætta að borga fyrir bloggfærslur og færa mig bloggið mitt á þennan vinsæla vef í staðinn.
Hér mun ég sem sagt í óákveðin tíma segja mína skoðun á lífinu og tilverunni. Þeir sem hafa gaman af að fylgjast með slíku er boðið að njóta vel og hinum er ráðlagt að loka þessum glugga hið snarasta og snúna sér að einhverju sem viðkomandi hefur gaman af. Lífið er nefnilega allt og stutt til að eyða því í einhver leiðindi.
Njótið dagsins - hann er Guðs gjöf til okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Forvitni
11.12.2006 | 22:50
Það er ekkert nema ósvikin íslensk forvitni sem rekur mig til að blogga hér. Ég er einn af þeim sem hef skoðun á öllu og er ekki mjög lagin við að geyma þær bara fyrir sjálfan mig. Ég hef reyndar bloggað í nokkur ár og held meðal annars út síðunni www.theodorb.net og hef gert það í rúmt ár. Ég held því örugglega áfarm því að þrátt fyrir nýungagirni þá er ég mjög íhaldssamur og vanafastur. Þar af leiðandi er líklegt að ég bloggi á báðum stöðum á meðan ég er að ákveða mig hvort ég tjái mig hér áfram.
Njótið lífsins!
Bloggar | Breytt 23.12.2008 kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)